07. október 2007 klukkan 00:42
Myndir sem að ég setti inn vilja ekki fara inn í nýtt albúm heldur í albúm sem er merkt afmæli -Ísak:)
ég er náttúrulega tölvunörd og gat ekki búið til nýtt albúm:-/ þetta er ekki ég heldur hel....... tölvur.
Knús og kossar, þolinmóða húsfreyjan:)
Unnur Alexandra Sigurđardóttir
06. október 2007 klukkan 23:58
Sæl:)
Loksins, loksins skrifar húsfreyjan, lykilorðið glataðist:-/ Af okkur er allt gott að frétta, brjálað að gera í skólanum og veturinn gengin í garð. Börnin eru hjá okkur þessa helgina, búið að vera rosalega gaman. Krakkarnir bökuðu muffins í dag, fannst það ekkert leiðinlegt, Birta og Hrannar voru í heimsókn og auðvitað hjálpuðu þau til, Ísak tók sér lúr á meðan en hann tók svo hraustlega á því þegar muffurnar voru komnar út úr ofninum:) namminamm. Við söknum Karolínu en hún er að passa lingana (kettlingar) fyrir ömmu Hrönn (er í Danmörku) hún kemur bráðum og verður hjá okkur þessi elska. Við hjónakornin erum á leið til New york eftir viku, meistaranemar frá Bifröst eru að fara í námsferð og bóndinn bauð mér með:) (bara sætastur) Annars eru nokkar myndir sem að ég setti inn, en þær voru teknar á afmæli mínu sl. 22.sept. jú jú takk fyrir, en akkurat þá helgina kom Jón Brynjar bróðir Bigga í heimsókn, börnin voru hjá okkur en Ísak fór heim á laugardeginum því hann var svo rosalega lasinn litli maðurinn og vildi bara mömmu sína:) eðlilega. Skrifa um ferðina þegar við komum heim en það verður ekki fyrr en 21.okt:) jibbí jei, hlakka til að fara.
Þangað til, hafið það gott, knús og kossar til ykkar.
Með beeeeeestu kveðjum, Sandra og family.
Unnur Alexandra Sigurđardóttir
18. ágúst 2007 klukkan 22:56
Hæ öll!
Það er búið að vera mjög tómlegt eftir að krakkarnir fóru

það var svo skemmtilegt og líflegt að hafa þau. Þessa helgina er Biggi í veiðivötnum með pabba sínum (karlaferð) svo að ég og karolína erum einar í kotinu en það er bara huggulegt. Veðrið hefur verið gott og við höfum grillað og chillað saman mæðgurnar

mjög gaman hjá okkur. Annars er allt sæmilegt að frétta af öllum, ég er reyndar að fara í magaspeglun á fimmtudag og vonandi kemur bara eitthvað gott úr því, komin með nóg af magatruflunum

í bili.
Hafið það sem allra best elskurnar, það er alltaf heitt á könnunni.
Knús og kossar, Sandra og Karó.
Unnur Alexandra Sigurđardóttir
01. ágúst 2007 klukkan 18:13
Hæ hó! Til hamingju með daginn Ísak. Það er búið að vera mikið skemmtilegt hjá okkur í dag, Ísak Máni prins er tveggja ára. Hann var reyndar mjög feiminn þegar afmælissöngurinn var sunginn, hann setti höndina undir kinn og var frekar hissa

Pabbi spilaði á piano og gestirnir sungu.
Sandra bakaði kökur, þegar Ísak átti að blása á kertið gat hann ekki svo sandra hjálpaði til með að blása.
Ísak Máni fékk nokkra bíla, litabók, spiderman drykkjarflösku, leirdót og smá nammi í afmælisgjöf frá vinum hér á Bifröst, hann var mjög glaður og t.d er hann búinn að sitja í klukkutíma og leira:) einbeittur á svip eins og sést á myndunum sem ég set inn undir Afmæli. Við þökkum kærlega fyrir daginn en svo verður alvöru veisla hjá mömmu seinna í ágúst, þegar allir eru komnir heim úr ferðalagi.
Knús og kossar til allra frá fjölskyldunni á Bifröst.
Unnur Alexandra Sigurđardóttir
31. júlí 2007 klukkan 17:02
Halló ! Í dag er ég búin að fylgjast með inni á heimasíðu skáta, þar sem Karolína Hrönn er á Alheimsmóti skáta í Bretlandi, þar er hægt að sjá myndir af mótinu og fylgjast með gang mála á mótinu. Þær hringdu heim í gær og það var rosalega gaman hjá þeim
gott veður í dag , sól og 22 stiga hiti. Við höfum engar áhyggjur af Karolínu því hún var svo rosalega vel útbúin enda kostaði það sitt
en vel þess virði, hún á eftir að búa að þessu allt sitt líf, einstakt tækifæri.
Ég set mynd af henni og Völlu inn á myndir, hún var tekin á Leifstöð áður en flogið var út.
Annars er allt gott hjá okkur, ég er að undirbúa afmæli fyrir Ísak á morgun en þá verður hann 2 ára þessi gullmoli, Segjum nánar frá því á morgun eða hinn:) bless í bili.
Knús og kossar, Sandra og lingarnir.
Unnur Alexandra Sigurđardóttir
26. júlí 2007 klukkan 21:01
Börnin komu í dag frá ömmu og afa á skaganum, þeim var boðið í ömmu/afa dekur í tvo daga, sem þeim fannst rosalega gaman, nema Harpa var ekkert rosa glöð fyrst um sinn þegar hún heyrði að Ísak ætti líka að fara þangað:) en allt saman gekk mjög vel. Það var ofboðslega gaman að sjá og fá þau aftur, en á morgun fara þau til mömmu í Hafnarfjörðinn yfir helgina þar sem að Sandra og Pabbi þurfa aðeins að læra.
Þeim verður sárt saknað og satt að segja vitum við ekki hvernig heimilislífið verður þegar þau fara heim 10. ágúst
, en þau ætla að koma aðra hverja helgi eftir það og þá getum við knúsast og haft gaman saman. Harpa fékk reyndar einhvert ofnæmi, amma fór með hana til læknis í dag en hann vissi ekki hvað þetta gæti verið svo að hún fékk ofnæmistöflur til að taka við kláðanum, vonandi hverfur þetta og kemur aldrei aftur, en við förum með hana í próf fyrir fæðuóþol og ofnæmi fyrir sýklalyfjum.
Þá sjáum við hvað kemur út úr því. En nóg í bili ,heyrumst fljótlega,
Kossar og knús,
Sandra og lingarnir...
.
Unnur Alexandra Sigurđardóttir
23. júlí 2007 klukkan 21:56
Halló elskurnar,
Litla fjölskyldan brá sér á næsta bæ til þess að snæða veislumat. Tilefnið var að kveðja Karolínu, hún er að fara til Englands í þrjár vikur. Voru allir mjög ánægðir með mat og drykk á Hraunsnefi, eftir það var stoppað í Baulunni og keyptur ís handa liðinu nema Söndru:( hún má ekki borða ís.
Síðan var ekið að hreðavatni og kerlingar fleyttar á vatninu, við mikin fögnuð barnanna.
Karolína fer heim á morgun til þess að undirbúa sig og pakka og við höldum bara áfram lífinu í sveitinni enda forréttindi að fá að eiga heima hérna. Ég setti nýjar myndir inn sem heita sumar-karó.
Njótið og ver glad;)
Kossar og knús,
Sandra og lingarnir.....
Unnur Alexandra Sigurđardóttir
23. júlí 2007 klukkan 14:43
Halló!
Loksins er komin bloggsíða um fjölskylduna á Bifröst
nú geta vinir og ættingjar fylgst með okkur í gegnum bloggið.
Af okkur er allt gott að frétta, Harpa Sóley og Ísak Máni eru hjá okkur í sex vikur í sumar og hefur það gengið alveg frábærlega vel, yndilseg börn. Karolína er hjá okkur líka en hún er að fara á alþjóðaskátamót til Bretlands þann 27. júlí og verður 3 vikur.
Biggi var að byrja í meistaranámi á Bifröst en Sandra er komin í sumarfrí:)
Ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, skrifa meira seinna.
Knús og Kossar, Sandra og lingarnir.
Unnur Alexandra Sigurđardóttir